JÖKLAKLIFUR Á SÓLHEIMAJÖKLI | SÉRFERÐ FYRIR ÞINN HÓP

Sólheimajökull er skriðjökull sem kemur frá Mýrdalsjökli að sunnanverðu. Jökullinn breytist hratt frá degi til dags og er því einstakur staður til að fræðast um nærliggjandi umhverfi sem einkennist af jöklum og eldfjöllum sem hafa mótað þetta einstaka landsslag. Ísklifur á Sólheimajökli er svo sannarlega eftirminnileg lífsreynsla, enda umhverfið alveg stórbrotið!

Þið hittið leiðsögumanninn okkar í rútu merktri Hidden Iceland á bílastæðinu við Sólheimajökul (vegur 221). Þar sem þið fáið allan þann öryggis- og klifurbúnað sem til þarf áður en haldið er upp á jökul (hjálmur, ísexi, klifurbroddar og klifurbelti). Síðan er haldið af stað og gengið upp jökuldalinn og upp á Sólheimajökul þar sem við gangið framhjá einstökum jökulmyndunum svo sem sprungur, svelgi og jökuldríli.

Áður en klifur hefst fer leiðsögumaðurinn í gegnum mikilvæg öryggis- og tækniatriði sem koma sér vel áður en klifrað er af stað. Við aðlögum erfiðleikastig ísklifursins eftir getustigi hópsins hverju sinni og vinnum okkur upp sjálfstraust og getu til að klifra upp meira krefjandi veggi. Áætlað er að ferðin taki u.þ.b. 4 klukkustundir á jöklinum og mælst er með því að ekki séu fleirri en 5 manns með hverjum leiðsögumanni.

Mælst er að því að það eru að hámarki 5 gestir með með einum leiðsögumanni að hverju sinni. Ef að þinn hópurinn er stærri hafðu samband við okkur með því að senda póst á info@hiddeniceland.is eða hringið í síma 770-5733 til að fá verðtilboð fyrir þinn hóp.

Helstu upplýsingar

FERÐATÍMABIL
Eftir óskum

BROTTFARARTÍMI
10:30 og 15:00
(sveigjanlegt)

UPPHAFSSTAÐUR
Bílastæðið Sólheimajökli

ERFIÐLEIKASTIG
Miðlungs

LENGD FERÐAR
U.þ.b. 4 klst

TUNGUMÁL
Íslenska eða enska

ALDURSTAKMARK
10 ára
(og passar í skóstærð 35 og upp)

HÓPASTÆRÐ
1 – 5 manns

Innifalið: Klifurbroddar, hjálmur, belti, ísöxi, leiðsögn
Ekki innifalið: Hlífðarklæðnaður, stífir gönguskór (hægt að leiga, sjá í bókunarferlinu), matur
Aukabúnaður til leigu: Gönguskór, regnheldur jakki, regnheldar buxur

Brottfarartími: Þar sem þetta er sérferð fyrir þinn hóp þá erum við sveigjanleg með tímasetningu sem hentar þér best hafið samband við Hidden Iceland ef þið viljið breyta brottfarartímanum.
Tungumál leiðsögumanns: Hjá Hidden Iceland starfar stórkostlegur hópur af ástríðufullum og faglærðum leiðsögumönnum með áralanga reynslu af leiðsögn á Íslandi. Við reynum eftir fremsta megni að vera með íslenskumælandi leiðsögumenn í þessari jöklagöngu, en það er ekki alltaf. Ef þið viljið tryggja það að hafa íslenskumælandi jöklaleiðsögumann hafið samband við okkur og við sjáum til þess að það gangi upp!

Við tökum við Ferðagjöfinni!

Gott að hafa í huga

Best er að vera í góðum vatnsheldum gönguskóm með ökklastuðningi og klæða sig eftir veðri. Sömuleiðis er gott að hafa meðferðis sólgleraugu, húfu eða buff, hanska, vatnsflösku og smá snarl, þó ekki nauðsynlegt. Hægt er að leiga gönguskó og hlífðarklæðnað á staðnum eða í bókunarferlinu.

Erfiðleikastig ísklifursins er aðlagað að reynslu hópsins og getur verið allt frá byrjendum og til þeirra sem hafa reynslu af jöklagöngu og klifrið. Jöklaleiðsögumaðurinn þinn mun kenna þér grunnatriðin og auka erfiðleikastig klifurins eftir færni þinni og sjálfstrausti.

Jöklagangan er hugsuð fyrir þá sem aldrei hafa stigið á jökul áður. Ísinn getur þó verið brattur og misjafn á köflum. Ef að þú átt erfitt með göngu á ójöfnu yfirborði í um klukkustund þá er jökulganga kannski ekki fyrir þig. Leiðsögumaðurinn getur neitað þér um að fara upp á jökul af öryggisástæðum. Nauðsynlegt er að vera með brodda á skóm (innifalið í verði ferðar) sem getur reynst hamlandi. Gönguleiðin nær yfir um 3-4 km. Erfiðleikastig jöklagöngunar er miðlungs þar sem þú ert að ganga upp og yfir ójafnt landslag og góður hreyfanleiki í hnjám og ökkla er mikilvægt.

Jökullinn getur stundum verið óöruggur og óaðgengilegur vegna veðurs eða annara aðstæðna við jökulinn. Þetta getur stafað út af mikilli úrkomu, sterkum vindi eða miklum snjó. Öryggi þitt er okkar forgangsferkefni. Ef aðstæður sem þessar koma upp þá finnum við annan dag eða aflýsum ferðinni og bjóðum fulla endurgreiðslu.

Allar ferðir Hidden Iceland eru í íslenskum krónum. Lesið bókunarskilmála okkar hér.

Hidden Iceland Logo | Hidden Iceland